22 desember 2015
Bætt aðgengi
fatlaðs fólks að samfélaginu í brennidepli
<p>Ellefu sveitarfélög og þjónustusvæði fatlaðs fólks hafa á þessu ári gert úttektir á aðgengi að opinberum byggingum, umferðarmannvirkjum og öðrum stöðum sem teljast opinber vettvangur. Úttektirnar hafa verið unnar með fjárstyrk frá velferðarráðuneytinu sem veitti fimm milljónir króna í verkefnið á grundvelli framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks.</p>