07 júlí 2023
Formennska Íslands í samráði NATO ríkja á vettvangi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu fer vel af stað
Ísland fer með formennsku í samráði NATO-ríkja á vettvangi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vínarborg í sex vikur, frá og með 1. júlí. Fyrsti fundur undir stjórn fastafulltrúa, Kristínar A. Árnadóttur, var helgaður stefnu og starfi NATO á sviði loftslagsbreytinga og öryggis enda eru þau mál í brennidepli á vettvangi ÖSE þessa dagana og til umræðu á NATO fundinum í Vilníus í næstu viku.