21 júní 2005
Dómsmálaráðherrar Norðurlanda: Samkomulag um framsal sakamanna.
<p>Dómsmálaráðherrar Norðurlanda efndu til árlegs fundar síns í dag og var hann haldinn á Skagen í Danmörku undir forsæti Lene Espersen, dómsmálaráðherra Dana. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd.</p>