24 október 2006
Stofnun Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf.
Stofnfundur Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. var haldinn í Reykjanesbæ í dag, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 26. september sl. Félagið, sem lýtur forræði forsætisráðherra, mun leiða þróun og umbreytingu á varnarsvæði því á Keflavíkurflugvelli sem koma á í arðbær borgaraleg not.