30 september 2015
Ráðstefna um stöðu og þróun sveitarstjórnarstigsins á
Íslandi í norrænu ljósi
<p>Sveitarstjórnarstigið á 21. öldinni er yfirskrift ráðstefnu á vegum innanríkisráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Nordregio, stofnunar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, sem haldin verður í Reykjavík mánudaginn 26. október næstkomandi. Fjallað verður um stöðu og þróun sveitarstjórnarstigsins á Íslandi í norrænu ljósi og spurt hvað læra megi af norrænum umbótaverkefnum.</p>