30 mars 2012
Fjórir samningskaflar opnaðir og tveimur lokað
<p>Samningaviðræður hófust í morgun um fjóra samningskafla í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins á ríkjaráðstefnu í Brussel. Viðræðum lauk samdægurs um tvo þeirra þ.e. um utanríkis-, öryggis- og varnarmál, og um neytendamál og heilsuvernd.  Frekari viðræður fara nú í hönd um hina samningskaflana en þeir fjalla um samkeppnismál og orkumál.</p>