19 júní 2017
Hlutfall kynjanna í nýjum nefndum, ráðum og stjórnum aldrei verið jafnara
Hlutur karla og kvenna í nýjum nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytanna hefur aldrei verið jafnara. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Jafnréttisstofu með greiningu á kynjaskiptingu í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2016.