16 desember 2008
Skýrsla forsætisráðherra um áhrif laga um opinberar eftirlitsreglur og störf ráðgjafarnefndar 2002-2005
Vorið 1999 voru samþykkt samhljóða á Alþingi lög nr. 27/1999, um opinberar eftirlitsreglur. Markmið laganna er að opinbert eftirlit stuðli að velferð þjóðarinnar, öryggi og heilbrigði almennings, öryggi eigna, umhverfisvernd, eðlilegum viðskiptaháttum og neytendavernd.