05 júní 2008
Ný lög og breytingar á eldri lögum við þinghlé
Á yfirstandandi þingi, sem nú hefur verið frestað fram á haust, hafa sex lagafrumvörp verið samþykkt sem umhverfisráðherra lagði fram. Um er að ræða breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs, lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, lögum um varnir gegn snjóflóðum og ný lög um nýja stofnun sem ber heitið Veðurstofa Íslands og ný lög um efni og efnablöndur.