18 desember 2006
Þrír möguleikar í jarðgöngum milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar
<p align=justify>Þrír kostir eru mögulegir varðandi jarðgöng milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar og tvo þeirra má útfæra á tvo vegu. Göng yrðu frá 2,4 km löng og uppí 6,3 km og gætu kostað frá 3,3 milljörðum króna uppí rúma 5,3 milljarða með vegskálum og tilheyrandi nýjum vegaköflum. </p>