21 júní 2012
Ráðuneytisstjóri fundar með aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu
<p>Hinn 20. júní átti Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, fund með Pavlo Klimkin, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu, sem staddur er í heimsókn á Íslandi. Á fundinum var fjallað um tvíhliða samskipti ríkjanna og samstarf á sviði viðskipta, en íslensk stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á gerð loftferðasamnings milli Íslands og Úkraínu.</p>