17 desember 2007
Starf forstjóra Umhverfisstofnunar er laust til umsóknar
Umhverfisráðuneytið auglýsir starf forstjóra Umhverfisstofnunar laust til umsóknar. Starfssvið forstjórans er stjórnun og stefnumótun stofnunarinnar, ábyrgð á rekstri, áætlanagerð, starfsmannamál og samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar næstkomandi.