15 júní 2018
Skipan í stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur skipað fulltrúa í stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál. Hlutverk hópsins er að efla samhæfingu innan Stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum og tryggja virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þessum málaflokki.