01 júní 2011
100. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO)
Í dag 1. júní 2011 var þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), alþjóðavinnumálaþingið, sett í 100. skiptið. Ekki er um að ræða afmæli stofnunarinnar en ákvörðun um koma henni á laggirnar var tekin við undirritun friðarsamninganna í Versölum árið 1918. Ári síðar tók Alþjóðavinnumálastofnunin til starfa. Hún varð ein af sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna árið 1946.