20 nóvember 2009
Umhverfisráðherra heimsækir Hekluskóga
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti Hekluskóga í gær. Farið var um starfssvæði Hekluskóga í Þjórsárdal, Hafi og Árskógum. Skoðuð voru örfoka svæði, nýleg uppgræðslusvæði og gróðursetningarreitir. Í lok ferðarinnar var skógur Skógræktar ríkisins í Þjórsárdal skoðaður.