03 febrúar 2013
Þriggja milljóna króna styrkur til Lífs styrktarfélags - Vilborg Arna Gissurardóttir suðurskautsfari heiðruð
<p>Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag Lífi, styrktarfélagi Kvennadeildar Landspítalans, þriggja milljóna króna styrk fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Hann er veittur í tilefni af afreki Vilborgar Örnu Gissurardóttur, sem náði því markmiði að ganga á suðurskautið til styrktar Lífi styrktarfélagi.</p>