24 maí 2013
Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í velferðarráðuneyti
<p>Kristján Þór Júlíusson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, kom til starfa í velferðarráðuneytinu í dag þar sem hann gegnir embætti heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem tók formlega til starfa á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær.</p>