10 júní 2011
Ríkisstjórnin samþykkir fjárveitingar vegna fyrstu aðgerða í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum.
<p>Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um ýmsar aðgerðir í kjölfar eldgosa. Samþykkt var að veita nú 54,3 milljónir króna til úrbóta í kjölfar eldgosa í Grímsvötnum, Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi.</p>