20 desember 2007
Undirritun samninga vegna þjónustu við geðfatlaða
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra undirritaði í dag annars vegar samkomulag við Brynju, Hússjóð Öryrkjabandalagsins, um kaup á 15 íbúðum í Reykjavík sem notaðar verða í þágu geðfatlaðra, og hins vegar við Klúbbinn Geysi og Geðhjálp, um dagþjónustu við geðfatlaða.