25 júlí 2011
Ráðstefna um beint lýðræði og aukna þátttöku íbúa
<p>Innanríkisráðuneytið efnir hinn 14. september næstkomandi til ráðstefnu í Reykjavík um eflingu beins lýðræðis<b>. </b>Nefnd á vegum innanríkisráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga um eflingu sveitarstjórnarstigsins annast undirbúning og skipulagningu ráðstefnunnar sem ætluð er sveitarstjórnarfólki og öllu áhugafólki um aukið lýðræði hjá ríkisvaldi og á sveitarstjórnarstigi. </p>