13 september 2017
Meirihluti ungmenna á flótta utan skóla - aðeins 1% í háskólanámi
<p>Rúmlega 3,5 milljónir flóttabarna á aldrinum fimm til sautján ára hafa ekki fengið tækifæri til að sækja skóla á síðasta skólaári. Þetta kemur fram í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) sem birt var í gær. Um er að ræða 1,5 milljón flóttabarna sem fara ekki í grunnskóla og tvær milljónir flóttaunglinga sem eru ekki í framhaldsskóla, segir í skýrslunni.</p>