14 nóvember 2005
Ríkisstjórn samþykkir frumvarp félagsmálaráðherra um breytingu á lögum um húsnæðismál
Í frumvarpinu, sem samið er í samræmi við 3. lið tillagna nefndar um endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga frá 17. mars 2005, er lagt til að Varasjóði húsnæðismála verði heimilað að auka árleg rekstrar- og söluframlög vegna félagslegra íbúða í eigu sveitarfélaga um allt að 280 m.kr. á árunum 2005 til 2007, eða alls 840 m.kr.