31 júlí 2015
585/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015
<p>Isavia ohf. krafðist þess aðallega að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál nefndarinnar nr. ÚNU 15020004, sem lyktaði með úrskurði nr. 580/2015. Til vara fór fyrirtækið þess á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki vera fyrir hendi lagaskilyrði til að verða við kröfum fyrirtækisins.</p>