09 desember 2010
Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
<p>Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Reglugerðin, sem nær til allra lögákveðinna verkefna sjóðsins, er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og öðlast gildi 1. janúar 2011. Þá fellur úr gildi reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003, með síðari breytingum.</p>