11 febrúar 2003
Upplýsingar um notkun þunglyndislyfja
Árið 2001 afgreiddu lyfjaverslanir sem svarar 73,7 af skilgreindum dagskömmtum af geðdeyfðarlyfjum fyrir hverja 1000 íbúa, eða tæplega 94% af skráðri sölu. Tæplega tveir þriðju lyfjaávísana voru handa konum, en þær fengu 74% fleiri dagskammta en karlar í heild, mismunandi eftir aldri. Þetta kom fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi.