05 apríl 2017
Utanríkisráðherra á ráðstefnu í Brussel um framtíð Sýrlands
<p><strong>Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tekur í dag þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um Sýrland sem fram fer í Brussel. Ráðstefnan, sem ber yfirskriftina "Stuðningur við framtíð Sýrlands og nágrannaríki þess" er haldin á vegum Evrópusambandsins, Sameinuðu þjóðanna, Bretlands, Katar, Kúveit, Noregs og Þýskalands.</strong></p>