09 júní 2014
Undirritun viljayfirlýsingar með sjávarútvegsráðherra Portúgals
<p>Í síðustu viku undirritaði Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, viljayfirlýsingu með landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra Portúgals, Assunção Cristas, þess efnis að tryggt verði að ekki sé fluttur út saltfiskur til Portúgals sem meðhöndlaður hefur verið með fosfötum í verkuninni, nema kaupandi óski þess sérstaklega.<br>
</p>