25 mars 2019
Nauðsynlegt að taka á skyndilánum
Umboðsmaður skuldara og Samtök fjármálafyrirtækja stóðu fyrir opinni ráðstefnu um ungt fólk og lánamarkaðinn í morgun. Þar var lögð megináhersla á fólk á aldrinum 18 til 29 ára sem hefur verið að taka smálán eða skyndilán, eins og umbosmaður skuldara nefnir þau. Markmiðið var að opna umræðuna á meðal fagfólks en ekki síður að auka vitund neytenda um breytt landslag í lánamálum.