20 september 2016
Íslenskum ríkisborgurum sem hafa verið búsettir erlendis lengur en átta ár gert kleift að kjósa
<p>Innanríkisráðuneytið vill vekja athygli á að með breytingu á lögum um kosningar til Alþingis er íslenskum ríkisborgurum, sem búsettir hafa verið erlendis lengur en átta ár og sem sóttu ekki um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. desember 2015, gert kleift að kjósa í komandi alþingiskosningum, 29. október næstkomandi.</p>