10 maí 2005
Efling löggæslu á Norður- og Austurlandi
Dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti á blaðamannafundi á Akureyri í dag að gera ætti breytingar á skipulagi sérsveitar lögreglunnar á Akureyri. Fjórir sérsveitarmenn, sem starfa í dag hjá lögreglunni á Akureyri og ganga þar vaktir, myndu starfa án vaktaskyldu og aðrir menn yrðu ráðnir til almennra löggæslustarfa í þeirra stað.