30 maí 2018
Framtíðarfundur um málaflokka samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
„Mikilvægt er að skilja hvaða þættir hafa áhrif á samfélagið og greina helstu stefnur og strauma á næstu árum“, sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í upphafi framtíðarfundar sem hann bauð til í dag undir heitinu Mótum framtíðina saman. Markmið fundarins var að fá skapandi umræðu um framtíðarsýn og áherslur í samgöngum, fjarskiptum og sveitarstjórna- og byggðamálum.