04 febrúar 2015
Ný rannsókn á „nægjanleika“ lífeyrissparnaðar
Í dag voru kynntar helstu niðurstöður nýrrar rannsóknar um hvenær lífeyrissparnaður telst nægilegur til framfærslu. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu verkefni sem gerir, með samræmdri aðferðafræði, samanburð á „nægjanleika“ lífeyris fólks á aldrinum 35-64 ára sem var á vinnumarkaði árið 2012. Verkefnið var fjármagnað með styrk frá Evrópusambandinu.