29 nóvember 2013
Aðgerðum haldið áfram í Kolgrafafirði
<p>Fyrstu vísbendingar um árangur af síldarfælingu með svokölluðum „Thunderflash“ hvellhettum í Kolgrafafirði í gær benda til þess að aðferðin virki við að smala síld.  Ákveðið  hefur verið að nýta reynsluna frá í gær til þess að halda áfram fælingaraðgerðum í dag í því skyni að kanna hvort aðferðin dugi til að koma meginhluta síldarinnar af því svæði þar sem hún er í mestri hættu.</p>