07 maí 2008
Samvinna dóms- og kirkjumálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis um starfrækslu meðferðargangs á Litla-Hrauni
<p>Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í dag samning sem tryggir fé til að standa undir rekstri við sérstakan meðferðargang í fangelsinu á Litla-Hrauni þar sem fangar fá hjálp við að vinna sig út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar.</p>