31 ágúst 2021
Liðskiptasetur sett á fót á Akranesi – hægt verður að gera um 430 aðgerðir á ári
Liðskiptaaðgerðum verður fjölgað umtalsvert með opnun liðskiptaseturs, þ.e. skurðstofu þar sem eingöngu er sinnt liðskiptaaðgerðum, við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE). Gert er ráð fyrir að liðskiptasetrið taki að fullu til starfa í mars á næsta ári. Stofnunin verður þá með getu til að framkvæma um 430 aðgerðir á ári sem er rúmlega tvöföldun á núverandi afkastagetu.…