22 febrúar 2017
Mörg þróunarríki í forystu endurnýjanlegrar orku
Fjölmörg þróunarríki eru í forystu þjóða sem leiða orkuskipti í heiminum með áherslu á endurnýjanlega orkugjafa. Þessar þjóðir eru Mexíkó, Kína, Tyrkland, Indland, Víetnam, Brasilía og Suður-Afríka, að því er fram kemur í nýrri skýrslu - og nýjum gagnvirkum vef - Alþjóðabankans á stöðu þessara mála í heiminum.