18 janúar 2019
Sendinefnd frá UNESCO á Íslandi
Dagana 10.-11. janúar sl. sótti sendinefnd á vegum UNESCO í París Ísland heim til að kynna sér samstarfsmöguleika á sviði þróunarsamvinnu. Kynntu fulltrúar UNESCO sér m.a. starf Jarðhitaskólans, Sjávarútvegsskólans, Landgræðsluskólans og Jafnréttisskólans, en skólarnir hafa um áratuga skeið verið mikilvægur þáttur í þróunarsamvinnu Íslendinga.