18 ágúst 2023
Funduðu með sveitastjórnarfólki um viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra funduðu í dag með sveitarstjórnarfulltrúum í Fjarðabyggð og Múlaþingi og kynntu þeim drög að skýrslu sem nú er í vinnslu um mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóðahættu á atvinnusvæðum á Íslandi.