16 desember 2020
Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherra Tékklands
Samskipti ríkjanna, norðurslóðarmál, samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og EES-samningurinn voru helstu umræðuefnin á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Tomáš Petříček, utanríkisráðherra Tékklands, sem fram fór í morgun.