10 september 2010
Ísland í kastljósinu á heimssýningunni í Shanghai
<p>Þjóðardagur Íslands verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 11. september á heimssýningunni EXPO 2010 í Shanghai. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun opna fjórar íslenskar sýningar en auk þeirra verður boðið upp á tónlist og dagskrá fyrir börn. Um 1,4 milljónir manna hafa heimsótt íslenska skálann á sýningunni.</p>