11 maí 2007
Sérfræðinganefnd skipuð til að kanna mögulegan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda
<p>Umhverfisráðherra hefur skipað sérfræðinganefnd til að kanna möguleika á samdrætti í nettólosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Nefndin er skipuð í samræmi við stefnumörkun stjórnvalda í loftslagsmálum. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands í umhverfis- og auðlindafræðum, verður formaður nefndarinnar.</p>