16 maí 2007
Forsætisráðherra afhendir fyrsta eintak nýrrar útgáfu Sverris sögu
<p>Á morgun, 17. maí – á þjóðhátíðardegi Norðmanna, mun forsætisráðherra, Geir H. Haarde, afhenda fyrsta eintakið af nýrri útgáfu Sverris sögu sem er fyrsta bókin af fjórum í þjóðargjöf Íslendinga til Norðmanna í tilefni af 100 ára afmæli endurreists konungssveldis í Noregi árið 2005. Afhendingin á sér stað við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu kl. 18.00.</p>