22 júní 2023
Starfsbrautir í fleiri framhaldsskóla en áður og allir umsækjendur fá boð um skólavist í dag
Þau börn sem sóttu um nám á starfsbrautum framhaldsskóla fá boð um skólavist í dag. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur lagt mikla áherslu á að öll börn fái boð um skólavist eins fljótt og auðið er og mennta- og barnamálaraðuneytið ásamt Menntamálastofnun, í samvinnu við framhaldsskóla, hafa unnið að því síðustu vikur að tryggja að svo verði.…