19 febrúar 2018
Tekist á við fyrirsjáanlegan kennaraskort
Nýliðun í kennarastétt og fyrirsjáanlegur kennaraskortur var efni funda sem mennta- og menningarmálaráðherra átti nýverið með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fulltrúa fjármálaráðherra og fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga, menntavísindasviðs Háskóla Íslands, kennaradeildar Háskólans á Akureyri og forystu kennara.