21 apríl 2013
Ráðgjöf AGS mun áfram standa til boða
<p>Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir sjóðinn stoltan af þeim árangri sem náðst hefði á Íslandi og bætti við að Íslendingar mættu sjálfir vera stoltir enda hafi þeir lagt á sig erfiðið. Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, fundaði með Shafik í Washington, þar sem hún sótti vorfund AGS og Alþjóðabankans.</p>