29 nóvember 2019
Íslensk menningarstarfsemi blómstrar í Kína
Óvenju mikil Íslandstengd menningarstarfsemi átti sér stað í Kína í nóvembermánuði. Íslenski dansflokkurinn, Gyða Valtýsdóttir, hljómveitin Múm, Hallveig Rúnarsdóttir og Hrönn Þráinsdóttir sem og íslensku uppistandararnir Helgi Steinar Gunnlaugsson, Bjarni töframaður og Þórhallur Þórhallsson komu öll fram í fjölda borga í Kína í mánuðinum.