03 október 2011
Íslensk
stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn efna til alþjóðlegrar ráðstefnu um lærdóma
af efnahagskreppunni og verkefni framundan
Ísland
var eitt af fyrstu löndunum sem alþjóðlega fjármálakreppan 2008 skall á af
fullum þunga. Nú, þremur árum síðar, þegar hagkerfið er á batavegi, munu
íslensk stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn standa sameiginlega fyrir
ráðstefnu með þekktum fyrirlesurum í Reykjavík 27. október 2011 til að meta
árangur Íslands og fjalla um þau viðfangsefni sem bíða úrlausnar.