30 nóvember 2012
Frumvarpi til laga um happdrættismál dreift á Alþingi
<p>Frumvarpi til laga um breytingu á lögum um happdrætti, nr. 38/2005, hefur verið dreift á Alþingi. Felur það einkum í sér aukið eftirlit með happdrættum, auknar forvarnir og takmörkun aðgengis að fjárhættuspilum á netinu sem eru óheimil hér á landi. Gera má ráð fyrir að málið komist á dagskrá Alþingis á næstunni.</p>