05 nóvember 2021
Ráðherra opnar kortavefsjá sem sýnir skurðaþekju Íslands
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði í gær nýjan upplýsingavef Landgræðslunnar um votlendi og áhrif framræslu þess á lífríki og losun gróðurhúsalofttegunda. Á vefnum er einnig að finna nýja kortavefsjá sem sýnir legu skurða á landinu og byggir hún á upplýsingum frá Landbúnaðarháskóla Íslands.