25 maí 2004
Nýjar leiðir vegna afbrota ungmenna
<p>Þann 11. september 2003 skipaði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra nefnd til að fara yfir og fylgjast með tilraunaverkefninu Hringnum, sem er samstarfsverkefni lögreglunnar í Reykjavík og Miðgarðs um nýjar leiðir vegna afbrota ósakhæfra ungmenna. Nefndin hefur nú lokið störfum og kynnti ráðherra skýrslu nefndarinnar á ríkisstjórnarfundi í morgun.</p>